Tuesday, January 17, 2012

Hvað er markaðsfræði?


Hvað er ‚Markaðsfræði‘?
Tjaaa.. samkvæmt formlegri skilgreiningu er markaðsfræði ‚athafnir, stofnanir og ferlar sem skapa, miðla, dreifa og skipta á tilboðum sem hafa virði fyrir viðskiptavini, skjólstæðinga, hluthafa og samfélagið í heild' (heimild: www.ru.is).

Spennandi!?

Þetta er svosem ágæt skilgreining til síns brúks og oft þarfleg fyrir akademískar pælingar. Á háskólaárunum mínum elskaði ég þessar skilgreiningar og pældi í þeim daginn út og inn. En það hafa ekki allir þann munað að hafa tíma til að pæla í skilgreiningum og satt best að segja þá segir hún okkur ekki mikið um hvað við eigum að gera til að vera góðir markaðsmenn.

En það að vera góður markaðsmaður hefur mér ekki fundist að vita allt á bókina. Ég hef hitt afburða markaðsmenn, sem aldrei hafa lesið stafkrók um markaðssetningu, þeir hafa þetta bara í sér.

En til þess að auka skilning og meðvitund um markaðsmál hefur það hjálpað mér mikið við að gera mig að ‚markaðsmanni‘ að afmarka mig við tvö atriði þegar ég hugsa um markaðssetningu.

Í fyrsta lagi: Hvað er samkeppnisforskotið?
Samkeppnisforskot er eitt af þessum hugtökum, þar sem skilgreiningin er ósköp einföld, en niðurstaðan í hinum raunverulega heimi getur verið óendanlega flókin. En það sem gerir einhvern að góðum markaðsmönnum er hæfileikin til að sjá samkeppnisforskot og það er byrjunin á markaðssetningu.

Í öðru lagi eru það Söluráðarnir
Í söluráðunum liggja allar ákvarðanir sem þú þarft að taka sem markaðsmaður. Og það er einmitt það sem markaðssetning og markaðsfræði snúast um. Að taka ákvarðanir.

  • Verðið – Hvað á varan þín að kosta? 
  • Varan – Hvaða eiginleika þarf varan þín að hafa 
  • Staðsetning – Hvar og hvernig á viðskiptavinurinn að nálgast vöruna 
  • Kynning – Hvaða upplýsingar þarf viðskiptavinurinn um hina þrjá söluráðana og hvernig ætlar þú að koma þeim skilaboðum á framfæri. 

Hér erum við kominn alveg niður í berstrípaðan grunninn í markaðssetningu. Til þess að ná árangri þarf þú að taka meðvitaðar og vel ígrundaðar ákvarðanir varðandi söluráðana fjóra og saman þurfa þeir að mynda samkeppnisforskot.

Ef þú nærð tökum á þessum hugtökum og einsetur þér að skilja samhengi þeirra og hvernig þeir tengjast innbyrðis, þá munt þú á endanum geta kallað þig markaðsmann!

No comments:

Post a Comment